top of page
IMG_7451_edited.jpg

Velkomin/n!

 

Hæ, ég heiti Tinna Laufdal og er stofnandi Tiny Viking. Ég er ástríðufullur talsmaður þess að finna sinn eigin stíl, búa til sín eigin föt & fylgihluti. Endurnýting er mér þar einnig ofarlega í huga. Ég hef gert handavinnu frá því að ég man eftir mér og hef margra ára reynslu af textílkennslu.

 

Síðustu ár hef ég hjálpað fólki eins og þér að læra að prjóna og sauma með uppskriftum, kennslumyndböndum og námskeiðum. Ég er staðráðin í að hjálpa þér að prjóna og sauma hlutina sem þú vilt búa til og klæðast.

 

Þegar þú skráir þig á námskeið færð þú aðgang að handavinnusamfélagi okkar á netinu, Tiny Viking samfélagið, þar sem við getum hvatt hvort annað áfram, leitað aðstoðar, deilt hugmyndum og auðvitað sýnt fínu verkefnin okkar ♡

 

Inn á milli fæ ég dellu í að skapa einhverja hluti sem eru þá einnig til sölu hér inni :)

 

“Ég trúi því að með því að styðjast við gamlar handavinnuhefðir, reyna að nota eins náttúruleg efni og við getum og hugsa vel um hlutina okkar að þá sköpum við betri heim með hlutum sem að við getum deilt á milli kynslóða.” 

- Tinna Laufdal

 

 

Ég er svo þakklát fyrir ykkur, vegna ykkar er Tiny Viking orðið það sem það er í dag! Takk fyrir ♡

 

Skemmtileg staðreynd:

 

Nafnið Tiny Viking er mér mjög kært. Það var ekki valið út í bláinn heldur er það samansett af nöfnum fjölskyldumeðlima í litlu fjölskyldunni okkar.

Ég Tinna, hef alltaf verið kölluð Tiny af bræðrum mínum og Viking eru þrír fyrstu stafirnir í nöfnunum á Viktoríu okkar og Inga (eiginmanni mínum). Saman erum við Tiny Viking.

 

Nafnið Tiny Viking passaði síðan svo fallega sem nafn á Íslenskri barnavöruverslun (eins og við byrjuðum en hefur þróast með árunum)

Umfjöllun

1200px-Morgunblaðið_Logo.svg.png
75303385_2463911287230480_43864602269376
bottom of page