Taskan er prjónuð í hring, neðan frá og upp. Í lokin er rennilás og fóður saumað við prjónuðu töskuna (í saumavél eða í höndunum). Saumaleiðbeiningar eru með í uppskrift.
Efni:
Mæli með t.d. Drops Karisma
Stærðir og magn af garni:
Onesize - 1 dokka (50g)
Hæð: 22 cm
Breidd: 26 cm
Prjónfesta:
21 L x 28 umf. á 4,5 mm prjóna= 10 x 10 cm
Það sem þarf:
- Garn
- 4,5 mm hringprjónar (40 cm langir)
- Kaðlaprjónn
- 2x prjónamerki
- Saumnál til frágangs
- Skæri
- Bómullarefni (fóður ofan í tösku)
- Rennilás - 26 cm langur
- Títuprjónar
- Tvinni
Hönnuður:
Tinna Laufdal
Þegar þú gengur frá greiðslu, veldu þá "sækja pöntun" þá sleppur þú við sendingarkosnað (uppskriftina færðu á rafrænu formi).
Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd ferðu sjálfkrafa beint yfir á síðu þar sem þú getur niðurhalað uppskriftinni. Einnig færðu sendan tölvupóst þar sem þú getur líka niðurhalað henni. Ef þú finnur ekki tölvupóstinn, prófaðu að athuga í "spam" hólf.